Ég býð upp á 60 mínútna fermingarmyndatökur en við finnum stað og stund í sameiningu. Mín "uppskrift" er að taka nokkrar uppstilltar myndir í bland við eitthvað frjálslegra en auðvitað er alltaf velkomið að koma með eigin hugmyndir. Hver fjölskylda getur nýtt tímann eins og hentar en algengt er að taka nokkrar myndir af allri fjölskyldunni, kannski draga áhugamálin inn í myndatökuna með íþróttabúningum eða einhverju slíku. Gæludýrin fá líka oft að koma með. Við reynum svo að taka myndir á fjölbreyttum stöðum.
Ég skila 40+ myndum í lit og svarthvítu. VSK og keyrsla að höfuðborgarsvæðinu í aðra áttina og Hvammstanga í hina áttina, er innifalin í verðinu.
Bókaðu myndatöku með því að fylla út þettta form, senda mér skilaboð á tölvupósti eða á samfélagsmiðlum!